Fotbolti.net
04.12.20 - 19:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Danmörk: Sveinn Aron skoraði og breytti leiknum fyrir OB

Danmörk: Sveinn Aron skoraði og breytti leiknum fyrir OB
Canon

Mynd: Getty Images

OB 2 - 1 Álaborg
OB vann 2-1 endurkomusigur á Álaborg í dönsku Superliga í dag.

Álaborg komst yfir á 41. mínútu með marki Jakob Ahlmann. Á 78. mínútu kom Sveinn Aron Guðjohnsen inn á hjá OB og mínútu seinna var hann búinn að skora. Fyrsta mark Sveins fyrir OB en hann er á láni frá ítalska félaginu Spezia.

Á 87. mínútu skoraði Mikkel Hyllegaard lokamark leiksins fyrir OB og tryggði heimamönnum stigin þrjú. Aron Elís Þrándarson lék ekki með OB í dag vegna meiðsla.

OB er með fjórtán stig efir ellefu leiki og er sem stendur í 8. sæti deildarinnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.