Fotbolti.net
05.01.18 - 16:08
Hafliði Breiðfjörð

Björn Bergmann Sigurðarson til Rostov (Staðfest)

Björn Bergmann er farinn í rússnesku deildina.

Björn Bergmann er farinn í rússnesku deildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Norska félagið Molde staðfesti rétt í þessu að félagið hafi selt Björn Bergmann Sigurðarson til FC Rostov í Rússlandi. Hjá Rostov verður hann liðsfélagi Sverris Inga Ingasonar liðsfélaga hans í íslenska landsliðinu.

Björn Bergmann gerir 3,5 ára samning við Rostov með möguleika á framlengingu til eins árs til viðbótar að því er segir í tilkynningu rússneska félagsins.
„Ég átti góðan tíma í Molde og heillaðist af öllum í kringum þetta félag, bæði leikmönnum og starfsfólki félagsins sem ég kalla vini mína í dag,\" sagði Björn Bergmann á vef norska félagsins í dag.

„Það hefur verið frábært að æfa undir stjórn Ole Gunnar Solskjær og ég hef lært mikið á þessum tíma. Ég varð bara að stökkva á það tækifæri að fara í sterkari deild núna,\" bætti hann við.

Björn Bergmann kom til Molde fyrir tímabilið 2014 en þá var hann á láni frá Wolves í Englandi. Hann fór svo til Danmerkur og aftur til Englands áður en hann samdi alfarið við Molde til þriggja ára sumarið 2016. Hann varð markahæsti leikmaður liðsins í norsku deildinni í fyrra með 16 mörk og einn besti leikmaður deildarinnar.

FC Rostov er í borginni Rostov On Don en þar leikur Ísland við Króatíu á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í sumar. Félagið reyndi að fá Björn Bergmann til liðs við sig síðasta sumar en þá náðist það ekki áður en félagaskiptaglugginn lokaði.

Björn Bergmann er 26 ára sóknarmaður sem hefur leikið níu A-landsleiki fyrir Ísland. Hann var upphaflega valinn í hópinn sem er á leið til Indónesíu í tvo vináttulandsleiki á næstu dögum en þurfti að draga sig út úr hópnum vegna þessara félagaskipta.

🔥🔥🔥

Welcome! 💛💙

Нападающий сборной Исландии Бьорн Сигурдарсон подписал с нашей командой долгосрочный контракт на 3,5 года с опцией продления на 1 год. pic.twitter.com/J8eIVJXoLm

— Football Club Rostov (@rostovfc) January 5, 2018


Vi takker Bjørn for tiden i Molde FK, og ønsker han lykke til i Russland! <3 https://t.co/sNvgF9hgrm pic.twitter.com/W0yhSMuslu

— Molde Fotballklubb (@Molde_FK) January 5, 2018



💛💙#мыростов pic.twitter.com/sD0Hj4snlR

— Football Club Rostov (@rostovfc) January 5, 2018


Heimild: Vefur Molde

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.