Fotbolti.net
05.01.18 - 20:59
Ingólfur Stefánsson

Cenk Tosun kominn til Everton (Staðfest)

Cenk Tosun kominn til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: GettyImages

Everton hefur gengið frá kaupum á Tyrkjanum Cenk Tosun framherja Besiktas á 27 milljónir punda.

Þessi 26 ára leikmaður skoraði 41 mark í 96 leikjum fyrir Besiktas. Hann skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning við Everton.

Everton tilkynnti um kaupinn í hálfleik í viðureign liðsins gegn nágrönnum sínum í Liverpool. Reiknað er með að Tosun geti spilað sinn fyrsta leik fyrir Everton gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni 13. janúar.
„Það var mikill áhugi frá þjálfaranum og klúbbnum. Þess vegna er ég hér.\"

„Ég er mjög ánægður að vera hér og ég er spenntur að spila fyrir Everton eins fljótt og mögulegt er. Þetta er stór klúbbur með góða sögu.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.