Fotbolti.net
05.01.18 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson

Luciano Vietto til Valencia (Staðfest)

Luciano Vietto til Valencia (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Valencia er búið að staðfesta komu framherjans Luciano Vietto á láni út tímabilið.

Vietto er 24 ára gamall, kemur á láni frá Atletico Madrid og mun spila undir stjórn Marcelino Garcia Toral. Þeir þekkjast frá tíma þeirra saman hjá Villarreal, þar sem Vietto gerði 20 mörk tímabilið 2014-15.
Það er kaupákvæði í samningnum sem gerir Valencia kleift að kaupa Vietto næsta sumar.

Vietto hefur ekki tekist að brjóta sér leið inn í sterkt byrjunarlið Atletico og ekki þótti hann nægilega sannfærandi á láni hjá Sevilla á síðasta tímabili.

„Ég mun endurtaka leikinn frá því hjá Villarreal. Ég þarf að fá meiri spilatíma til að finna sjálfstraustið,\" sagði Vietto um félagsskiptin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.