Fotbolti.net
05.01.18 - 17:24
Elvar Geir Magnússon

Ross Barkley til Chelsea (Staðfest)

Barkley krotar undir hjá Chelsea.

Barkley krotar undir hjá Chelsea.

Canon

Mynd: Chelsea

Chelsea hefur keypt Ross Barkley frá Everton á 15 milljónir punda. Þessi 24 ára leikmaður hefur skrifað undir fimm og hálfs árs samning við Englandsmeistarana og fer í treyju númer átta.
Barkley yfirgefur Everton eftir þrettán ára veru hjá félaginu en hann hefur ekki spilað í sjö mánuði vegna meiðsla aftan í læri og aðgerðar í ágúst.

„Hann er ungur og það er pláss fyrir bætingu. Hann er sterkur og með góða tækni. Að sama skapi verðum við að hafa þolinmæði til að hjálpa honum að komast aftur í sitt besta stand,\" segir Antonio Conte, stjóri Chelsea. „Hann lenti í erfiðum meiðslum og þurfti að fara í aðgerð. Hann hefur ekki spilað í sjö mánuði.\"

Chelsea reyndi að fá Barkley síðasta sumar en samningur hans við Everton rennur út í lok tímabilsins. Chelsea fær hann því á afsláttarverði.

„Ég er ákaflega ánægður og fullur tilhlökkunar,\" sagði Barkley við heimasíðu Chelsea. „Það er magnað fyrir mig að fá nýja byrjun hjá félagi eins og Chelsea. Það er ótrúlegt. Ég vonast til að bæta minn leik og skora fleiri mörk.\"

.@RBarkley20: ‘To be given a fresh start at a new club like Chelsea, it\'s unbelievable for me.\' #WelcomeBarkley pic.twitter.com/6piWqWkPMS

— Chelsea FC (@ChelseaFC) January 5, 2018

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.