05.01.18 - 17:23
Elvar Geir Magnússon
Sneijder til Katar eftir stutt stopp í Nice (Staðfest)

Wesley Sneijder.

Mynd: Getty Images

Wesley Sneijder.

Mynd: Getty Images
Hollenski landsliðsmaðurinn Wesley Sneijder hefur yfirgefið Nice í Frakklandi eftir stutt stopp hjá félaginu.
Sneijder fór í Nice í ágúst á síðasta ári eftir að hafa verið leystur undan samningi við Galatasaray. Hann hefur aðeins byrjað fjóra deildarleiki í Frakklandi á þessu tímabili.

Þessi 33 ára leikmaður hefur gert átján mánaða samning við Al-Gharafa í Katar.
„Þetta er skemmtilegt ævintýri og áskorun. Ég er fullur tilhlökkunar að fara með fjölskyldunni til Katar,\" segir Sneijder sem er leikjahæsti leikmaður hollenska landsliðsins frá upphafi.
Hann hefur þó ekki verið valinn í síðustu landsliðsverkefni Hollands.
Meðal liðsfélaga Sneijder hjá Al-Gharafa verða Luis Jimenez, fyrrum landsliðsmaður Síle, og Vladimir Weiss, landsliðsmaður Slóvakíu.