Fotbolti.net
05.01.18 - 23:30
Ingólfur Stefánsson

Sveinn Sigurður í Val (Staðfest)

Sveinn Sigurður í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Sveinn Sigurður Jóhannesson hefur fengið leikheimild með Íslandsmeisturum Vals. Hann gengur til liðs við liðið frá Stjörnunni.

Sveinn verður löglegur með Val þegar þeir mæta Fjölni í Reykjavíkurmótinu á morgun.

Valsmenn verða hinsvegar án Antons Ara Einarssonar sem verður farinn með íslenska landsliðinu til Indónesíu.
Sveinn sem er fæddur árið 1995 er uppalinn hjá Stjörnunni og spilaði 6 leiki með liðinu síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.