Fotbolti.net
05.01.19 - 18:25
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Dagur Dan til Mjondalen á láni (Staðfest)

Dagur Dan í leik með Keflavík síðasta sumar.

Dagur Dan í leik með Keflavík síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Keflavík hefur samþykkt að lána miðjumanninn unga Dag Dan Þórhallsson til Mjondalen.
Fram kemur í tilkynningu knattspyrnudeildar Keflavíkur að Dagur fari til Noregs á næstu dögum og norska félagið á möguleika að kaupa hann í vor.

Dagur Dan sem er fæddur árið 2000 gekk til liðs við Keflavík í apríl á síðasta ári en hann kom þangað frá Gent í Belgíu.

Hann kom við sögu í 16 deildarleikjum hjá Keflavík í Pepsi-deildinni síðasta sumar og skoraði 1 mark.

Mjondalen endaði í 2. sæti í 1. deildinni í Noregi á síðasta tímabili og mun því leika í norsku úrvalsdeildinni þegar deildin fer aftur á stað í lok mars.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.