05.01.19 - 10:34
Arnar Helgi Magnússon
Theodór Elmar semur við Gaziher (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Theodór Elmar Bjarnason er genginn til liðs við tyrneska 1. deildar félagið Gaziher Gaziantep FK. Þetta tilkynnti Theodór á Twitter síðu sinni.
Elmar yfirgaf tyrkneska liðið Elazigspor fyrir áramót þar sem hann hafði ekki fengið greidd laun en Elazigspor leikur einmitt líka í 1.deildinni í Tyrklandi.
Orðrómur fór af stað um að Elmar myndi snúa aftur í KR en hann lék með liðinu í Bosemótinu fyrir áramót. Nú er orðið ljóst að svo verður ekki.
„Ég er mjög spenntur að vera kominn til Gazisehir. Nú geri ég mitt allra besta til þess að hjálpa liðinu að komastu upp í úrvalsdeildina," segir Theódór.
Gazisehir situr í þriðja sæti deildarinnar þegar sautján leikir hafa verið spilaðir, tvö lið fara upp í úrvalsdeildina.

I am very excited to sign for the amazing club of Gazisehir, now I look forward to help the team to promote to the superleague @GazisehirFK 👊🏻 pic.twitter.com/1R5y3qJ7bG
— Elmar Bjarnason (@ElmarBjarnason) January 5, 2019