05.02.19 - 18:42
Elvar Geir Magnússon
Albert Brynjar í Fjölni (Staðfest)

Mynd: Fjölnir

Mynd: Fjölnir
Sóknarmaðurinn reynslumikli Albert Brynjar Ingason er genginn í raðir Fjölnis frá Fylki.
Fjölnismenn féllu úr Pepsi-deildinni á síðasta tímabili en Albert ætlar að reyna að aðstoða Grafarvogsliðið við að endurheimta sæti sitt í deild þeirra bestu.
Albert Brynjar skoraði fimm mörk í 22 leikjum fyrir Fylki í Pepsi-deildinni í fyrra, þar af var þrenna í 7-0 sigri gegn Fjölni í lokaumferðinni.

Tilkynning frá Fjölni:
Fjölnir hefur komist að samkomulagi við Albert Ingason og Fylki um félagaskipti hans í Fjölni.
Albert Brynjar er 33 ára framherji með 286 leiki og 94 mörk á bakinu og þar af 13 Evrópuleiki og eitt mark. Hann hefur spilað m.a. með Fylki, FH og Val. Það er ljóst að þetta er gríðarlegur liðsstyrkur fyrir Fjölni.
Á myndinni má sjá hann ásamt Ásmundi Arnarssyni þjálfara og Árna Hermannssyni formanni knattspyrnudeildar Fjölnis.
Við bjóðum Albert Brynjar hjartanlega velkominn í Grafarvoginn og væntum mikils af honum í framtíðinni.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.