05.02.19 - 09:00
Magnús Már Einarsson
Dagný Brynjars aftur í Portland Thorns (Staðfest)

Dagný Brynjarsdóttir.

Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn

Dagný Brynjarsdóttir.

Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn

Dagný Brynjarsdóttir hefur gengið til liðs við Portland Thorns í Bandarikjunum á nýjan leik. Greint hafði verið frá fyrirhuguðum félagaskiptum á dögunum og Portland Thorns hefur nú staðfest þau.
Dagný spilaði með Portland Thorns 2016 og 2017 en í fyrra spilaði hún ekkert þar sem hún eignaðist son síðastliðið sumar.
Síðari hluta tímabils var Dagný með leikheimild með sínu gamla félagi Selfossi en hún spilaði þó ekkert með liðinu.
Dagný er 27 ára miðjumaður en hún hefur skorað 22 mörk í 76 landsleikjum á ferlinum.

Nýtt tímabil í Bandaríkjunum hefst í mars næstkomandi.
She's baaaaaaack!
— Portland Thorns FC (@ThornsFC) February 4, 2019
We have re-signed midfielder Dagny Brynjarsdottir. 🌹
DETAILS | https://t.co/QrOLQ41OEZ | #BAONPDX pic.twitter.com/5tneYzAVyB
We can't wait to see you too, @dagnybrynjars! 😍 #BAONPDX pic.twitter.com/w1d7bsZuMf
— Portland Thorns FC (@ThornsFC) February 4, 2019