Fotbolti.net
05.04.20 - 11:00
Ívan Guðjón Baldursson

Hvítrússneska deildin að selja tíu nýja sjónvarpssamninga

Hvítrússneska deildin að selja tíu nýja sjónvarpssamninga
Canon

Mynd: Getty Images

Hvítrússar virðast vera í afneitun varðandi kórónuveiruna og heldur venjulegt líf fólks áfram.
Efsta deild í Hvíta-Rússlandi er ein af fáum sem er enn í gangi í heiminum og hefur knattspyrnumönnum verið bannað að tala við erlenda fjölmiðla.

Belgíski miðjumaðurinn Danilo, sem er á mála hjá Dinamo Minsk, tjáði sig þó við fjölmiðla á dögunum og sagði að leikmenn væru prófaðir daglega. Hann segir að fyllstu varúðar sé gætt til að halda leikmönnum heilbrigðum.

Þetta hefur orðið til þess að rekstur hvítrússnesku deildarinnar er að blómstra. Deildin er að semja um tíu nýja sjónvarpssamninga þar sem fótboltaþyrstir knattspyrnuunnendur víða um heim leita sér dægrastyttingar.

Hvítrússneski boltinn verður því meðal annars sýndur í Rússlandi, Úkraínu, Ísrael og á Indlandi ef samningar nást. Hvítrússneska deildin er almennt talin hundleiðinleg þar sem afar lítið er um markaskorun.

Willum Þór Willumsson leikur fyrir eitt af stærstu félögum Hvíta-Rússlands, BATE Borisov.
Hvítrússneska deildin að selja tíu nýja sjónvarpssamninga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.