Fotbolti.net
05.04.26 - 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói útherji

Atletico leggur fram kvörtun - Drógu brottvísun leikmanns Barcelona til baka

Atletico leggur fram kvörtun - Drógu brottvísun leikmanns Barcelona til baka
Canon

Mynd: EPA

Atletico Madrid hefur kvartað til dómaranefndar spænska fótboltasambandsins eftir að Gerard Martin, leikmaður Barcelona, fékk ekki rautt spjald í leik liðanna í gær.
Spánn: Lewandowski með skrautlegt sigurmark - Barcelona styrkir stöðu sína
TENGT EFNI

Spánn: Lewandowski með skrautlegt sigurmark - Barcelona styrkir stöðu sína

Dómari leiksins gaf Martin rautt spjald fyrir brot á Thiago Almada en VAR steig inn í og niðurstaðan var aðeins gult spjald. Spænski miðillinn Diario AS greinir frá því að Atletico hafi lagt fram kvörtun.

Atletico vísar í atvik þar sem dómaranefndin viðurkenndi að mistök hafi verið gerð þegar Valentin Gomez, leikmaður Real Betis, hafi ekki verið rekinn af velli fyrir brot á Andrei Ratiu, leikmanni Rayo Vallecano.

Það var einnig mikil reiði innan herbúða Atletico eftir leik liðsins gegn Real Madrid fyrir landsleikjahléið. Þá töldu þeir að Dani Carvajal hafi brotið af sér innan teigs en ekkert dæmt.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.