Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 05. maí 2021 07:00
Elvar Geir Magnússon
Sakala í Rangers (Staðfest)
Fashion Sakala.
Fashion Sakala.
Mynd: Getty Images
Fashion Sakala hefur gert fjögurra ára samning við Skotlandsmeistarana í Rangers.

Þessi 24 ára landsliðsmaður Sambíu verður formlega leikmaður Rangers í sumar.

Hann skoraði 13 mörk í 29 leikjum fyrir Oostende í belgísku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Í viðtali við heimasíðu Rangers segir hann að félagið sé eitt það besta í heimi.

„Þeir eru með frábæra stuðningsmenn og glæsta sögu. Leikmennirnir eru góðir og ég hlakka til að læra af þeim," segir Sakala.

Steven Gerrard, stjóri Rangers, segir að Sakala hafi verið á óskalista Rangers í nokkurn tíma.
Athugasemdir
banner
banner