Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 05. júní 2020 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Suarez setur sér markmið - Vill verða þriðji markahæsti í sögunni
Luis Suarez
Luis Suarez
Mynd: Getty Images
Úrúgvæski framherjinn Luis Suarez hefur sett sér markmið hjá Barcelona en hann vill verða þriðji markahæsti leikmaðurinn í sögunni en hann er aðeins þremur mörkum frá næsta manni.

Suarez hefur skorað 191 mark í öllum keppnum með Barcelona sem er aðeins þremur mörkum minna en Laszlo Kubala gerði með liðinu.

Suarez hefur verið meiddur undanfarna mánuði en hann verður þó klár í slaginn er spænska deildin hefst á nýjan leik á næstu dögum.

„Ég hef alltaf sagt að metin og þessir áfangar koma að sjálfu sér og maður þarf bara að einbeita sér að því að hjálpa liðinu. Það er auðvitað velkomið að eiga tækifæri á því að ná þriðja sætinu af Kubala sem var goðsögn hér. Það myndi þýða mikið fyrir mig að gera það hjá félagi eins og Barcelona," sagði Suarez.

Lionel Messi er langefstur hjá Barcelona en hann hefur skorað 627 mörk á meðan César er í öðru sæti með 232 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner