Spænski vinstri bakvörðurinn Juan Miranda verður áfram hjá þýska félaginu Schalke en hann staðfesti þetta í viðtali við Sport.es á dögunum.
Miranda, sem er 20 ára gamall, var lánaður til Schalke frá Barcelona fyrir síðustu leiktíð en hann hefur spilað sjö leiki og byrjaði meðal annars í síðasta leik gegn Werder Bremen.
Hann var lánaður út þetta tímabil og átti lánssamningurinn að renna út í lok maí en ákveðið var að framlengja samninginn.
Miranda mun því leika með Schalke á næstu leiktíð en hann vill halda áfram að þróa leik sinn í Þýskalandi.
Það er hins vegar óvíst hvort að Jean-Clair Todibo verði áfram hjá Schalke en þýska félagið getur keypt hann fyrir 25 milljónir evra í sumar.
Athugasemdir