PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
Gunnari Heiðar fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið í dag
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
„Var að reka á eftir hlutum sem hún á ekkert að vera að reka á eftir“
Thelma eftir fyrsta landsliðsmarkið: Ég er smá fúl samt
Talar um „ógeðslegan leik" - Þarf betri ramma um nýju reglurnar
Sara ræðir heimkomuna - „Var í Lyon þegar Dóri spyr mig fyrst hvort ég sé að koma heim“
Sævar Atli ræðir brottrekstur Freys - „Fengum ekki að kveðja hann“
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
   fös 05. júní 2026 20:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraká
Talar um „ógeðslegan leik" - Þarf betri ramma um nýju reglurnar
Eimskip
Hildur Antonsdóttir.
Hildur Antonsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við gerðum allt sem við þurftum til að vinna þennan leik. Þetta var ógeðslegur leikur. Það er langt síðan ég hef spilað svona kaotískan leik. Við erum mjög ánægðar að fara af velli með sigur," sagði Hildur Antonsdóttir eftir 0-1 sigur Íslands gegn Úkraínu í undankeppni HM í kvöld.

Lestu um leikinn: Úkraína 0 -  1 Ísland

Hvað gerði þennan leik svona ógeðslegan?

„Þessar nýju reglur, ég held að dómararnir hafi farið alveg vitlaust með þær. Hvorugt liðið var að tefja og alltaf voru þær að tala um fimm sekúndur. Þetta endaði fram og til baka hjá báðum liðum. Boltinn var fram og til baka og dómarinn var ekki með stjórn á leiknum."

FIFA er að innleiða nýjar reglur sem munu meðal annars vera í gildi á HM í sumar. Reglurnar segja meðal annars til um að dómari eigi að telja niður við innkast og markspyrnur og leikmaður sem fær aðhlynningu verður að vera út af í 60 sekúndur. Þessar reglur voru í gildi í leiknum í kvöld og tók dómarinn mjög hart á því.

„Hvorugt liðið var að tefja. Þetta á að vera þegar lið eru að tefja. Hún er að telja fimm sekúndur niður hjá Úkraínu sem eru augljóslega ekki að tefja. Þær eru að reyna að skora. Mér finnst þurfa aðeins betri rammagerð utan um þessar reglur ef fólk á að fá skemmtilegan fótbolta til að horfa á. Það gat ekki verið gaman að horfa á þennan leik," sagði Hildur sem var mikið spörkuð niður í leiknum.

„Þær vou náttúrulega mjög grófar og ég missti hausinn einu sinni, en sem betur fer voru liðsfélagar mínir tilbúnir að róa mig niður. Það er okkar að halda haus. Ég gerði það ekki einu sinni en restin af liðinu gerði það."

Viðtalið er í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner