Thomas Frank, fyrrum stjóri Tottenham og Brentford, hefur útilokað að hann taki við þjálfunarstarfi í sumar. Danski stjórinn var látinn fara frá Tottenham 11. febrúar eftir að hafa verið ráðinn til félagsins síðasta sumar. Igor Tudor var ráðinn til bráðabirgða en svo tók Roberto De Zerbi við og náði að halda liðinu í úrvalsdeildinni.
Sky Sports fékk senda yfirlýsingu og þar segir Frank að hann muni einn daginn snúa til baka, en hann sé nú í hléi frá þjálfun. Hann er því ekki mögulegur kostur fyrir Crystal Palace eða Fulham sem eru í stjóraleit.
Sky Sports fékk senda yfirlýsingu og þar segir Frank að hann muni einn daginn snúa til baka, en hann sé nú í hléi frá þjálfun. Hann er því ekki mögulegur kostur fyrir Crystal Palace eða Fulham sem eru í stjóraleit.
„Ég vil þakka öllum fyrir sem höfðu samband síðustu mánuði. Ykkar stuðningur og hvatning er mjög vel þeginn."
„Ég hef fengið tækifæri núna til að líta til baka yfir ferðalagið til þessa. Stjórastarfið í fótbolta er atvinna sem krefst algjörrar skuldbindingar á hverjum degi og tímabil eins og þetta eru sjaldgæft tækifæri til að meta, læra og öðlast nýtt sjónarhorn."
Frank segir að úrslitin hjá Tottenham hafi augljóslega ekki verið góð, en hann sér líka það bjarta í tíma sínum hjá félaginu.
„Fyrir mér er Tottenham sérstakt félag, mikið af hæfileikaríku fólki sem leggur gríðarlega mikið á sig á hverjum degi. Ég efast ekki um að Tottenham eigi bjarta framtíð."
„Fótboltinn er risastór hluti af mér og ég hef ákveðið að á komandi mánuðum mun ég verja tíma mínum með fjölskyldu, vinum og einnig mun ég halda áfram að mennta mig, fylgjast með og læra af öðrum leiðtogum, bæði innan íþrótta og utan þeirra."
„Ég er líka spenntur að fjalla um HM í danska sjónvarpinu og hjá BBC, auk þess að upplifa Tour de France. Með því að vera fjarri hliðarlínunni næ ég að breikka sjóndeildarhringinn og fá innsýn inn í það sem ég vil gera næst."
„Það hafa verið tækifæri frá því að ég yfirgaf Spurs, en ég hef ákveðið að flýta mér ekki í næsta hlutverk. Fyrir mig er þetta sumar ekki tímapunkturinn fyrir mig að snúa aftur."
„Þegar tíminn verður sá rétti, þá mun ég spenntur snúa aftur sem stjóri," segir Frank.


