Fotbolti.net
05.07.21 - 23:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Okkar leikmaður þangað til Norwich ákveður að gera eitthvað annað"

„Okkar leikmaður þangað til Norwich ákveður að gera eitthvað annað"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísak Snær Þorvaldsson er á láni hjá ÍA frá Norwich. Það er óljóst hversu lengi Ísak verður með ÍA en lánssamningurinn átti að renna út um mánaðarmótin.

Ísak Snær sendi frá sér færslu á Twitter í síðustu viku þar sem hann staðfesti að hann yrði lengur hjá félaginu en sagðist aðspurður að hann hugsaði einungis um einn leik í einu þangað til meira kæmi í ljós.
Jóhannes Karl Guðjónsson var spurður út í Ísak Snæ í viðtali eftir leikinn gegn Víkingi í kvöld.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 0 ÍA

„Hann er náttúrulega bara okkar leikmaður þangað til Norwich ákveður að gera eitthvað annað. Vonandi verður hann bara með okkur sem lengst því hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur," sagði Jói Kalli.

„Við höfum fært hann aðeins framar á völlinn og hann hefur verið öflugur í þessu sóknarhlutverki í undanförnum leikjum. Við viljum nýta krafta hans sem lengst," bætti Jói Kalli við. Viðtalið má sjá hér að neðan.

Sjá einnig:
Jói Kalli: Þú getur ekki séð þetta tvisvar!

Jói Kalli: Þú getur ekki séð þetta tvisvar!

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.