Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 05. ágúst 2020 14:00
Magnús Már Einarsson
Átta marka Antonio leikmaður júlí mánaðar
Hasenhuttl stjóri mánaðarins
Michail Antonio fór á kostum í júlí.
Michail Antonio fór á kostum í júlí.
Mynd: Getty Images
Michail Antonio, leikmaður West Ham, hefur verið valinn leikmaður júlí mánaðar í ensku úrvalsdeildinni.

Antonio skoraði átta mörk og lagði upp eitt þegar West Ham bjargaði sér frá falli í júlí. Hann skoraði meðal annars öll mörkin í 4-0 útisigri gegn Norwich.

Antonio er fyrsti leikmaður West Ham til að vera valinn leikmaður mánaðarins síðan Diafra Sakho var valinn leikmaður október mánaðar árið 2014.

Ralph Hasenhuttl, stjóri Southampton, fékk verðlaunin sem stjóri mánaðarins en liðið spilaði sex leiki mánuðinum án þess að tapa.

Southampton vann meðal annars Manchester City 1-0 og endaði í ellefta sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner