Fotbolti.net
05.09.12 - 06:00
Sebastían Sævarsson Meyer

Lassana Diarra til Anzhi (Staðfest)

Lassana Diarra til Anzhi (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Anzhi Makhachkala hefur gengið frá kaupum á Lassana Diarra frá Real Madrid og hefur leikmaðurinn skrifað undir fjögurra ára samning við rússneska félagið.

Greint var frá því um helgina að Real Madrid myndi lána Diarra til Anzhi en nú hefur fengist staðfest að Anzhi hafi eignað sér franska miðjumanninn.
Þessi 27 ára leikmaður kom til Real Madrid árið 2009 frá Portsmouth og spilaði stórt hlutverk í liðinu fyrst um sinn en með tímanum féll hann aftar í goggunarröðinni og var ekki lengur inn í myndinni.

Hann mun nú spila með leikmönnum eins og Samuel Eto\'o, Christopher Samba og Yuri Zhirkov undir stjórn Guus Hiddink en Anzhi ætlar sér stóra hluti á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.