05.09.12 - 12:30
Magnús Már Einarsson
Cris til Galatasaray (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski varnarmaðurinn Cris hefur gengið til liðs við tyrknesku meistarana í Galatasaray.
Þessi 35 ára gamli leikmaður skrifaði undir eins árs samning við Galtasaray.
Cris hefur leikið yfir 200 leiki með Lyon síðan hann kom til félagsins árið 2004 en hann varð fjórum sinnum franskur meistari með liðinu.

,,Þegar einar dyr lokast þá opnast aðrar,\" sagði Cris við heimasíðu Lyon.
,,Þetta er nýr kafli í mínu lífi. Ég er ánægður á vissan hátt en líka leiður á annan hátt.\"

Heimild: Sky