Fotbolti.net
05.09.12 - 13:38
Daníel Freyr Jónsson

Angelo Henriquez til Manchester United (Staðfest)

Angelo Henriquez til Manchester United (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Manchester United hefur nú klárað kaupin á Angelo Henriquez frá Uniersidad de Chile fyrir óuppgefna upphæð.
Talsvert er síðan leikmaðurinn fékk atvinnuleyfi á Englandi og er samningurinn nú frágenginn.



Henriquez er einungis 18 ára gamall og mun hann klæðast treyju númer 21 í vetur.



Chilebúinn hefur um langt skeið verið undir smásjá United, en hann hefur vakið talsverða athygli fyrir frammistöðu sína. 



Hjá Universidad skoraði þessi stórefnilegi framherji 11 mörk í 17 leikjum, auk þess sem hann hefur farið mikinn með yngri landsliðum Chile.



,,Við getum verið stoltir af því hvað við höfum búið til marga góða leikmenn úr efnilegum og Angelo er akkurat í þeim flokki leikmanna United - hæfileikaríkur, sókndjarfur og getur spilað með miklu flæði,\" sagði Sir Alex Ferguson, stjóri United, við undirskriftina.

Heimild: Heimasíða Man Utd

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.