05.09.12 - 14:10
Elvar Geir Magnússon
Del Piero til Sidney (Staðfest) - Hafnaði Liverpool

Alessandro Del Piero.

Mynd: Getty Images

Alessandro Del Piero.

Mynd: Getty Images
Alessandro Del Piero hélt blaðamannafund í dag og tilkynnti að hann væri búinn að ganga í raðir Sidney í Ástralíu. Þessi 37 ára ítalski leikmaður hafði verið orðaður við Liverpool
„Þetta er sérstakur dagur fyrir mig, öðruvísi. Það er með gleði sem ég tilkynni það að ég mun spila í Ástralíu næstu tvö ár. Þetta verður magnað ævintýri. Ég hefði ekki getað fundið betri stað fyrir mig,\" segir Del Piero.
Del Piero var á frjálsri sölu eftir að Juventus ákvað að bjóða honum ekki nýjan samning í sumar.
„Ég bjóst ekki alveg við því að svona mörg félög myndu hafa samband við mig. Ég kýs að nefna þau ekki en ég þakka öllum þessum félögum sem eru um allan heim.\"
Del Piero viðurkenndi það þó að Liverpool hefði haft áhuga þegar blaðamenn spurðu hann út í það.
„Liverpool gerði tilboð en ég þurfti á einhverju öðruvísi að halda. Ég er kominn til Ástralíu til að vinna leiki og skora mörk. Vonandi hjálpa ég fótboltanum í landinu að stækka,\" segir Del Piero.
Sidney FC endaði í fimmta sæti áströlsku deildarinnar á síðasta tímabili.