05.09.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pekerman hættur með Kólumbíu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jose Pekerman hefur ákveðið að hætta með kólumbíska landsliðið eftir sex og hálft ár við stjórnvölinn.
Pekerman leiddi kólumbíska landsliðið á tvö heimsmeistaramót í röð eftir 16 ára fjarveru og stóð liðið sig með prýði í bæði skiptin.
Fyrra skiptið var 2014 þegar Kólumbía var slegið út af heimamönnu í Brasilíu í 8-liða úrslitum. Seinna skiptið var í sumar, þegar England þurfti vítaspyrnukeppni til að senda Kólumbíu heim í 16-liða úrslitum.
„Ég naut mín hérna og ég vona innilega að framtíð landsliðsins verði enn betri án mín,\" sagði Pekerman.
Pekerman er 69 ára gamall og stýrði argentínska landsliðinu frá 2004 til 2006, eftir að hafa verið við stjórnvölinn hjá U20 lið Argentínu í sjö ár.
Arturo Reyes Montero mun þjálfa landsliðið þar til nýr framtíðarþjálfari verður fundinn.