05.10.12 - 20:30
Daníel Freyr Jónsson
DJ Campbell lánaður til Ipswich (Staðfest)

DJ Campbell.

Mynd: Getty Images

DJ Campbell.

Mynd: Getty Images
Ipswich hefur fengið framherjann DJ Campbell á láni frá úrvalsdeildarliði QPR.
Samningurinn gildir fram að áramótum, en þessi 30 ára gamli leikmaður var ekki valinn í 25 manna leikmannahóp QPR fyrir veturinn og hefur því ekkert komið við sögu á tímabilinu.
Hann skoraði eitt mark fyrir QPR í 11 leikjum á síðustu leiktíð eftir að hafa komið á Loftus Road frá Blackbpool sumarið 2011.
Ipswich fékk einnig til sín Richie Wellens frá Leicester í gær og mun liðið því líklega tefla fram tveimur nýjum leikmönnum þegar Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff mæta á Portman Road um helgina.