Fotbolti.net
05.10.18 - 14:50
Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sig áfram með Fylki næstu tvö árin (Staðfest)

Helgi Sigurðsson heldur áfram með lið Fylkis.

Helgi Sigurðsson heldur áfram með lið Fylkis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Fylkir staðfesti í dag að Helgi Sigurðsson verði áfram þjálfari Fylki næstu tvö árin. Hann kom liðinu upp í Pepsi-deildina á sínu fyrsta tímabili með liðið sumarið 2017 og í sumar enduðu þeir í 8. sæti deildarinnar.
„„Helgi hefur stađiđ sig vel sem þjálfari frá því hann kom til félagsins fyrir tveimur árum. Hann kom Fylkisliđinu upp í fyrra međ sigri í Inkassodeildinni," segir í Hrafnkell Helgi Helgason í meistaraflokksráði Fylkis tilkynningu félagsins í dag.

„Í ár hélt síđan liđiđ sæti sínu í Pepsídeildinni sem var planiđ fyrir tímabiliđ. Viđ stefnum síđan á næsta tímabili ađ byggja ofan á þann árangur og stíga skref fram á viđ međ Helga í brúnni," bætti hann við.

Orðrómur var uppi um að Fylkir myndi skipta um þjálfara í sumar og í slúðrinu hafði meðal annars komið fram að Helgi gæti tekið við Víkingum. Nú er ljóst að svo verður ekki og hann verður áfram í Árbænum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.