mán 05. október 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Af hverju kaupir Real Madrid engan í þessum glugga?
Mynd: Getty Images
Allt bendir til þess að gluggadagurinn verði rólegur á skrifstofunni hjá spænska stórliðinu Real Madrid.

Real Madrid hefur ekki keypt neinn leikmann í þessum glugga á meðan Gareth Bale, James Rodriguez, Achraf Hakimi og Sergio Reguilon hafa allir farið annað.

En af hverju kaupir Real Madrid engan í þessum glugga? BBC segir að fjárhagurinn hjá Real Madrid hafi oft verið betri en kórónuveirufaraldurinn hefur sett stórt strik í reikninginn.

Þá er félagið að eyða miklum pening í endurbætur á heimavelli sínum Santiago Bernabeu.

Einnig eru sögusagnir um að Real Madrid sé að spara pening til að kaupa Kylian Mbappe frá PSG á risa upphæð næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner