Fotbolti.net
05.10.22 - 10:10
Elvar Geir Magnússon

Xhaka fær hrós frá Henry

Granit Xhaka.

Granit Xhaka.

Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal goðsögnin Thierry Henry segir að góð frammistaða svissneska miðjumannsins Granit Xhaka á þessu tímabili hafi komið sér á óvart. Hann segir að Xhaka sé ein af lykilástæðunum fyrir góðri byrjun Arsenal á tímabilinu.

„Úrslitin gegn Tottenham um helgina voru frábær en það er frammistaða leikmanna sem stendur upp úr. Granit Xhaka er farinn að spila miklu betur. Ég er mjög hrifinn af hans frammistöðu," segir Henry sem hrósar fleirum.
„Það hefur orðið mikil breyting á Arsenal liðinu. Gabriel Jesus hefur breytt miklu og Saliba og Zinchenko koma með nýja möguleika í vörninni. Það er hægt að spila úr öftustu línu eins og þekkist hjá Manchester City."

„Arsenal er aftur orðið samkeppnishæft á toppi deildarinnar. Það er ánægjulegt að sjá. Vonandi getur liðið haldið sér í þessari baráttu."

Arsenal er á toppi ensku deildarinnar með eins stigs forystu á Manchester City en á sunnudag leikur Arsenal gegn Liverpool.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal7+618
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Leeds7+310
8Everton7+110
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Bournemouth7-46
16Coventry6-66
17Fulham7-35
18Nott. Forest7-45
19Sunderland7-84
20Tottenham6-63
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.