05.11.12 - 17:27
Magnús Már Einarsson
Ragnar Pétursson í ÍBV (Staðfest)

Ragnar Pétursson.

Mynd: Jóhann Atli Hafliðason

Ragnar Pétursson.

Mynd: Jóhann Atli Hafliðason
ÍBV er að fá miðjumanninn unga Ragnar Pétursson í sínar raðir frá Hetti. Ragnar mun skrifa undir samning við félagið um næstu helgi en þetta kemur fram á 433.is.
Ragnar, sem er 18 ára gamall, hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með meistaraflokki Hattar undanfarin þrjú ár.
Í sumar spilaði Ragnar nítján leiki í fyrstu deildinni en hann var fastamaður á miðjunni hjá Hetti.
Ragnar er annar leikmaðurinn sem ÍBV fær í sínar raðir síðan Hermann Hreiðarsson tók við þjálfun liðsins en Jón Gísli Ström kom frá ÍR á dögunum.
Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV segir á stuðningsmannasíðu liðsins á Facebook að Hermann eigi í viðræðum við fleiri leikmenn.
,,Hermann nálgast þetta öðruvísi en fyrirrennarar hans vill fá unga og graða peyja sem berjast fyrir klúbbinn og telur hann Jón Gísla eiga fullt erindi til okkar enda þjálfaði hann Jón í sumar,\" sagði Óskar Örn.
,,Við megum ekki gleyma okkar peyjum en nú nálgast nokkrir meistaraflokkinn og verður að hugsa vel um þá, fara þeir fyrstu að koma inn í sumar. Hemmi er í viðræðum við stærri nöfn sem ekki er hægt að gefa upp.\"