Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   þri 05. desember 2023 12:30
Elvar Geir Magnússon
Kolbeinn í liði umferðarinnar - „Einn besti vinstri bakvörður deildarinnar“
Kolbeinn Birgir Finnsson.
Kolbeinn Birgir Finnsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kolbeinn Finnsson, vinstri bakvörður Lyngby og íslenska landsliðsins, er í úrvalsliði umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni.

Kolbeinn átti sannkallaðan stórleik þegar Lyngby vann 2-0 sigur gegn Silkeborg á sunnudaginn.

„Mark og stoðsending þegar Lyngby komst út úr hrinu slæmra úrslita með því að vinna flottan 2-0 sigur gegn Silkeborg. Íslendingurinn er meðal bestu vinstri bakvarða Súperlígunnar," segir í umfjöllun Tipsbladet.

Hinn 24 ára gamli Kolbeinn er með tvö mörk og tvær stoðsendingar á tímabilinu. Lyngby er í sjöunda sæti dönsku deildarinnar en hún er komin í vetrarhlé.
Athugasemdir
banner