06.01.18 - 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Átta leikmenn sem gætu farið á flakk í janúar

Coutinho er farinn frá Liverpool.

Mynd: Getty Images

Giroud þarf að spila meira.

Mynd: Getty Images

Darmian hefur verið orðaður við Juventus, Napoli og Inter.

Mynd: Getty Images

Coutinho er farinn frá Liverpool.

Mynd: Getty Images
Það er búið að opna janúar gluggann og leikmenn mega því færa sig um set ef þeir kjósa það.
Nú þegar hafa lið eins og Liverpool og Everton rifið fram veskið og keypt til sín öfluga leikmenn og von er á því að fleiri lið geri það á næstu dögum.
En hvaða leikmenn gætu verið á förum úr ensku úrvalsdeildinni í þessum mánuði?
Talksport tók saman lista yfir átta leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni sem gætu söðlað um í janúar.

Henrikh Mkhitaryan (Manchester United)
Mkhitaryan hefur átt í erfiðleikum með að heilla Jose Mourinho, sérstaklega á þessu tímabili; hefur valdið vonbrigðum. Inter Milan vill fá hann í sínar raðir.
Philippe Coutinho (Liverpool)
Sagan endalausa. Coutinho hefur lengi verið orðaður við Barcelona en nú fyrst virðast kaupin ætla að ganga í gegn. Liverpool vill ekki missa hann núna, en leikmaðurinn sjálfur vill ólmur komast til Katalóníu. Talið er að kaupverðið verði 160 milljónir evra.
Uppfært: Coutinho er kominn til Barcelona (Staðfest)
Olivier Giroud (Arsenal)
Það er HM-ár og hann ætlar sér að leiða línu Frakklands í Rússlandi. Hefur aðeins byrjað einn deildarleik á tímabilinu og vill ólmur komast í burtu frá Norður-Lundúnum. Mörg félög hafa áhuga á honum, þar á meðal AC Milan og Fenerbache.
David Luiz (Chelsea)
Virðist ekki vera lengur í plönunum hjá Antonio Conte. Andreas Christensen hefur eignað sér stöðuna sem Brasilíumaðurinn átti á síðasta tímabili hjá Chelsea. Hefur verið bendlaður við spænsku stórliðin, Barcelona og Real Madrid.
Emre Can (Liverpool)
Það gæti farið svo að það verði ekki bara Coutinho sem yfirgefur Anfield í þessum mánuði. Sögur segja að Juventus sé búið að ná samkomulagi við þýska miðjumanninn, Emre Can. Verður samningslaus næsta sumar og Liverpool gæti selt hann í þessum mánuði til þess að fá eitthvað fyrir hann.
Sandro Ramirez (Everton)
Var keyptur til Everton til að skora mörk. Hann hefur ekki gert það, málið er einfalt. Lítur ekki út fyrir að vera nógu góður fyrir ensku úrvalsdeildina og virðist ekki eiga mikla framtíð hjá Everton, sem var að ganga frá kaupum á tyrkneska framherjanum, Cenk Tosun. Sandro er líklega á leið heim til Spánar.
Matteo Darmian (Manchester United)
Mörg félög á Ítalíu hafa áhuga á Darmian, sem fær lítið að spila hjá Jose Mourinho. Juventus, Napoli og Inter Milan hafa öll verið orðuð við þennan 28 ára gamla bakvörð.
Manolo Gabbiadini (Southampton)
Leit mjög vel út í fyrstu eftir að hann kom til Southampton í fyrra. Hann skoraði sex mörk í fyrstu fjórum leikjum sínum fyrir félagið. Hann hefur ekki fundið gamla formið og hefur aðeins náð að skora þrjú mörk í síðustu 17 leikjum sem hann hefur spilað. Hefur verið orðaður við lið á Ítalíu.

Henrikh Mkhitaryan.

Mynd: Getty Images

David Luiz.

Mynd: Getty Images

Emre Can.

Mynd: Getty Images

Sandro Ramirez.

Mynd: Everton

Manolo Gabbiadini.

Mynd: Getty Images