Fotbolti.net
06.01.18 - 06:00
Ingólfur Stefánsson

Heiðar Geir í Fram (Staðfest)

Heiðar Geir er kominn heim í Fram.

Heiðar Geir er kominn heim í Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heiðar Geir Júlíusson er genginn í raðir Fram frá Þrótti Reykjavík.

Heiðar Geir er uppalinn hjá Fram en hann lék á sínum tíma með Ängelholms FF og Hammarby í efstu tveimur deildunum í Svíþjóð.

Árið 2013 kom Heiðar aftur til Íslands en hann spilaði þá með Fylki í Pepsi-deildinni.

Síðan þá hefur Heiðar komið víða við en hann hefur síðan þá meðal annars spilað með IFK Uddevalla og Brage í Svíþjóð, Ham/Kam í Noregi og Cambridge City á Englandi.

Heiðar sem er 29 ára gamall spilaði 16 leiki með Þrótti síðastliðið sumar og skoraði eitt mark.
Hann er nú kominn heim í Safamýrina en Fram endaði í níunda sæti Inkasso-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.