06.01.19 - 20:48
Ívan Guðjón Baldursson
Brahim Diaz til Real Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur gengið frá kaupunum á Brahim Diaz sem mun gangast undir læknisskoðun hjá félaginu á morgun, mánudag.
Diaz er 19 ára miðjumaður og vildi hann yfirgefa Manchester City til að fá meiri spilatíma.
Kaupverð er óuppgefið en það er talið nema í kringum 20 milljónir punda. Diaz kostaði svona 'lítið' einungis vegna þess að annars hefði hann farið frítt næsta sumar.
Sky Sports greinir frá því að Diaz er búinn að skrifa undir sex og hálfs árs samning við spænska stórveldið og gildir samningur hans því til 30. júní 2025.
Þetta er kjörinn tími fyrir Diaz til að komast inn í lið Real Madrid þar sem margir leikmenn hafa verið að spila undir getu og sárafáir með fast byrjunarliðssæti.