06.01.19 - 16:42
Ívan Guðjón Baldursson
Jermain Defoe til Rangers (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Rangers er búið að staðfesta komu Jermain Defoe til félagsins á 18 mánaða lánssamning.
Defoe er 36 ára gamall en verður eflaust hinn fínasti liðsstyrkur í toppbaráttu skosku deildarinnar.
Defoe gerði garðinn frægan í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann er sjöundi markahæsti leikmaðurinn frá stofnun deildarinnar.
Defoe er samningsbundinn Bournemouth sem getur endurkallað markarefinn úr láninu annað hvort næsta sumar eða í janúar á næsta ári.
Rangers hefur verið að gera góða hluti undir stjórn Steven Gerrard og er félagið jafnt Celtic á toppi deildarinnar sem stendur.