Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 06. janúar 2022 16:00
Elvar Geir Magnússon
Tottenham hefur áhuga á að fá Traore og gera hann að vængbakverði
Adama Traore.
Adama Traore.
Mynd: Getty Images
The Athletic segir að Tottenham skoði það að gera tilboð í Adama Traore núna í janúarglugganum. Félagið ku hafa áhuga á að gera hann að vængbakverði.

Tottenham var nálægt því að fá Traore síðasta sumar og nú er mögulegt að nýtt tilboð verði gert. Matt Doherty gæti farið aftur til Wolves sem hluti af tilboðinu.

Frægt er þegar Antonio Conte þjálfaði Victor Moses upp í að vera vængbakvörður í liði Chelsea sem vann ensku úrvalsdeildina 2017.

Traore á aðeins átján mánuði eftir af samningi sínum við Úlfana en hann hefur hvorki náð að skora né leggja upp mark á tímabilinu.

Úlfarnir eru sagðir opnir fyrir því að selja Traore áður en hann fer inn í lokaár samnings síns. Hann er metiunn á um 20 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner