Fotbolti.net
06.02.19 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Birkir Freyr aftur í Reyni S. (Staðfest)

Birkir í leik með Reyni árið 2016.

Birkir í leik með Reyni árið 2016.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Reynir Sandgerði hefur fengið Birki Freyr Sigurðsson aftur í sínar raðir frá Njarðvik en hann hefur gert eins árs samning við félagið.

Birkir er örvfættur kant og bakvörður en hann hefur verið á mála hjá Njarðvík undanfarin tvö ár.
Birkir, sem er 26 ára gamall Sandgerðingur, hefur mikla leikreynslu þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur leikið 166 leiki í deild og bikar í meistaraflokki og skorað í þeim 25 mörk.

„Þar af hefur hann leikið 132 leiki með Reyni Sandgerði og því er möguleiki fyrir hann í sumar að komast í úrvalshóp leikmanna sem hafa náð 150 leikjum með Reyni," segir í tilkynningu frá Reyni.

„Stjórn ksd. Reynis fagnar þessum öfluga liðsstyrk fyrir átökin í 3. deildinni í sumar og hlakkar til samstarfsins."

Reynir Sandgerði vann 4. deildina síðastliðið sumar og spilar því á ný í 3. deildinni næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.