Fotbolti.net
06.02.19 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Ravel Morrison til Östersund (Staðfest)

Ravel Morrison.

Ravel Morrison.

Canon

Mynd: Getty Images

Ravel Morrison, fyrrum miðjumaður Manchester United og West Ham, hefur gengið til liðs við til Östersund í Svíþjóð

Hinn 26 ára gamli Morrison var síðast á mála hjá Lazio en hann hefur einungis spilað fjóra leiki í Serie A síðan árið 2015.
Morrison ólst upp hjá Mancheser United og þótti mikið efni. Hann fór til Birmingham, QPR og Cardiff á láni áður en hann gekk í raðir West Ham árið 2012. Ferill hans hefur hins vegar ekki náð miklum hæðum undanfarin ár.

Sænska félagið Östersund vakti mikla athygli í fyrra þegar liðið komst upp úr riðlinum í Evrópudeildinni og mætti Arsenal í 16-liða úrslitum.

Englendingurinn Ian Burchnall er þjálfari Östersund en hann tók við af Graham Potter sem fór til Swansea síðastliðið sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.