Heimild: Dr. Football
Valdimar Þór Ingimundarson er í hlaðvarpsþættinum Dr. Football sterklega orðaður við Kalmar. Sænska liðið komst upp úr B-deildinni á síðasta tímabili og verður því í Allsvenskan á komandi tímabili.
Valdimar er samningsbundinn Víkingi og þarf Kalmar að kaupa hann af Íslandsmeisturunum. Í Dr. Football var tekið fram að félögin væru ekki búin að ná samkomulagi sín á milli. Það er áhugi frá Kalmar á því að fá Valdimar í sínar raðir og ætti að skýrast fljótlega hvort Valdimar fari til félagsins eða ekki.
Fyrr í vetur fjallaði Fótbolti.net um áhuga á Valdimar.

Valdimar átti frábært tímabil í Bestu deildinni í fyrra og var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins. Hann er fæddur árið 1999 og kom til Víkings fyrir tímabilið 2024 eftir að hafa spilað með Strömsgodset og Sogndal í Noregi.
Valdimar kom að 15 mörkum í Bestu deildinni og er samningsbundinn Víkingi út tímabilið 2027.
Davíð Kristján Ólafsson er samkvæmt Transfermarkt eini Íslendingurinn sem hefur verið hjá Kalmar hann var þar á árunum 2022-24 og fór í kjölfarið til Póllands. Davíð fór frá Cracovia í Póllandi til Larissa í Grikklandi í síðasta mánuði.
Athugasemdir