lau 06. mars 2021 13:35
Aksentije Milisic
Mikael Egill lagði upp sigurmarkið gegn Juventus
Mynd: SPAL
SPAL og Juventus áttust við í ítölsku Primavera 1. deildinni í dag.

Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði SPAL í leiknum og átti hann eftir að láta af sér kveða.

Aðeins eitt mark var skorað í leiknum og það gerðu heimamenn. Mikael Egill lagði upp markið fyrir SPAL sem reyndist vera sigurmark leiksins.

Mikael spilaði allan leikinn í dag. Fyrr í vetur var greint frá því að Juventus hafi áhuga á leikmanninum og vilji fá hann í U23 ára liðið sitt.


Athugasemdir
banner
banner