AC Milan ætlar ekki að framlengja samning framherjans Mario Mandzukic sem kom til félagsins fyrr á tímabilinu.
Þetta segir blaðamaðurinn Nicolo Schira en Mandzukic kom óvænt til Milan í byrjun árs eftir dvöl í Katar.
Króatinn hefur lítið fengið að spila á San Siro en hann hefur aðeins komið við sögu í fjórum deildarleikjum.
Mandzukic er 34 ára gamall og gerði garðinn frægan með Bayern Munchen, Atletico Madrid og svo Juventus.
Líkur eru þó á því að Zlatan Ibrahimovic framlengi samning sinn en hann verður bráðlega fertugur að aldri.
Athugasemdir