Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 06. apríl 2021 15:10
Elvar Geir Magnússon
Pulisic og Kante leikfærir gegn Porto
Kante verður á bekknum
Pulisic fór af velli gegn West Brom.
Pulisic fór af velli gegn West Brom.
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel segir að þeir Christian Pulisic og N'Golo Kante séu leikfærir fyrir morgundaginn þegar Chelsea mætir Porto í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Pulisic fór af velli vegna meiðsla aftan í læri í tapinu gegn West Brom á laugardaginn en hann hafði skorað fyrsta mark leiksins.

Kante missti af leiknum en meiðsli aftan í læri hafa líka verið að plaga hann. Talið var að hann yrði frá í einhverjar vikur en hann verður í leikmannahópnum fyrir leikinn á morgun.

Tammy Abraham verður einnig í hópnum.

„Þeir þrír eru allir klárir í að vera í hópnum og verða þar. Það eru góðar fréttir. Christian fór af velli áður en hann varð fyrir meiðslunum, hann fann að ef hann myndi halda áfram þá gætu komið meiðsli og við ákváðum að taka hann af velli," segir Tuchel.

„Tammy verður í hópnum og N'Golo verður á bekknum. Honum líður vel og getur verið á bekknum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner