Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   mán 06. apríl 2026 20:12
Kári Snorrason
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR vann 4-2 sigur á Val í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins fyrr í kvöld. KR komst í 3-0 forystu en Valsmenn náðu að skora tvívegis í síðari hálfleik.

Það er því ljóst að Valsmenn, sem fóru alla leið í úrslit í fyrra, hafa lokið þátttöku í Mjólkurbikarnum þetta árið. Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, ræddi við Fótbolta.net eftir leik.

Lestu um leikinn: KR 4 -  2 Valur

„Þetta eru tvö mörk þar sem er ekki nægilega sterkur varnarleikur. Horn og fyrirgjöf. En í leiknum sjálfum náum við ekki að halda nægilega vel í boltann, okkur vantar samhæfingu og leikæfingu. Við erum að fá menn alla saman í þennan leik sem er alvöru leikur.

Það er kannski stóra svekkelsið. En um leið og við finnum takt í leiknum þá er þetta 50/50 og rúmlega það. Við fáum bestu færin hérna fyrir utan 4-2. Í stöðunni 3-1 þrýstum við aðeins á þá, þannig ég tek margt jákvætt út úr þessu. Það er súrt hvernig veturinn er búinn að vera. Við erum ekki alveg komnir í leikform, þannig þetta var kannski afraksturinn af því.“


Var frammistaðan áhyggjuefni?
„Nei, ekki neitt. Um leið og við breyttum um kerfi, sem við höfum ekki haft tíma til að gera, þá var þetta jafn leikur. Hún er ekki áhyggjuefni. Markið sem við skorum, ef það verður skorað betra mark en þetta í allt sumar skal ég hundur heita.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner