Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   mán 06. apríl 2026 15:39
Kári Snorrason
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dramatíkin réði ríkjum er HK kom til baka og vann magnaðan 4-3 sigur á Fjölni í Egilshöllinni fyrr í dag. Útlitið var svart fyrir HK-inga í hálfleik en þá leiddu Fjölnismenn með tveimur mörkum. Þeir Dominik Radic og Jóhann Þór Arnarsson reyndust þó Fjölnismönnum erfiðir og skoruðu tvö mörk hvor.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, var að vonum ánægður með úrslitin er hann ræddi við Fótbolta.net eftir leik.

Lestu um leikinn: Fjölnir 3 -  4 HK

„Þetta var mjög kaflaskipt. Í fyrri hálfleik vorum við ekki með. Í raun ótrúlegt hversu 'soft' við vorum og eftir á þeim í öllu. Við unnum ekki einn fyrri bolta og ekki einn seinni bolta, við vorum ekki með. Í rauninni vorum við heppnir að vera bara 2-0 undir í hálfleik ef ég á að segja eins og er,“ sagði Gunnar og hélt áfram.

„En í hálfleik fórum við aðeins yfir hlutina og menn voru tilbúnir í það að leggja á sig vinnu, sem er það sem maður þarf að gera til þess að vinna Fjölni hérna í Egilshöllinni. Frábært að svara því bara strax og að ná jöfnunarmarkinu líka.

Svo er þetta víti klaufalegt sem hefði getað snúið þessu í hina áttina aftur en ég var mjög ánægður með hugarfarið og karakterinn í okkur í seinni hálfleik. Við sýndum það virkilega hversu góðir við erum og hversu góðir við getum verið varnarlega líka ef við erum on it,“
sagði Gunnar að lokum.

Slapp
banner
banner