Fotbolti.net
06.04.26 - 20:28
Kári Snorrason

Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur

Auglýsing
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
KR vann sannfærandi 4-2 sigur á Val í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í Egilshöllinni fyrr í kvöld. Því er ljóst að Vesturbæingar verða í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit bikarsins næstkomandi fimmtudag.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, ræddi við Fótbolta.net eftir leik.
Mjólkurbikarinn: Aron Sig frábær í sigri KR á Val
TENGT EFNI

Mjólkurbikarinn: Aron Sig frábær í sigri KR á Val

Lestu um leikinn: KR 4 - 2 Valur
„Við vorum með tögl og hagldir á leiknum fyrstu 60 mínúturnar. Svo náðu þeir mómentinu, þeir eru auðvitað með gott lið. Við það leggst yfir okkur einhver hræðsla. Sem er gott að finna, við höfum ekki fundið fyrir henni í vetur.

Það er gott fyrir tímabilið að hafa lent í þessum leik þar sem það var rafmagnað - hver nær næsta marki? Var tilfinningin sem ég var með á hliðarlínunni. Ég veit ekki hvort að einhver annar fann fyrir henni en ég fann fyrir að ef þeir minnkuðu muninn í 4-3, fer þá allt í háaloft bara. Mér fannst við standa þetta vel af okkur, gáfum ekki of mikið af færum á okkur. Ég fer sáttur á koddann í kvöld.“


Hvað þarf KR að gera til að heimfæra úrslit undirbúningstímabilsins yfir í deildina?
„Við þurfum að halda orkustiginu háu. Við þurfum að vera fullhlaðnir af orku. Þar liggur lykillinn að frammistöðunum okkar. Varnarleikurinn á vallarhelmingi andstæðingana er góður.“

„Við þurfum fyrst og fremst að passa upp á að orkustigið verði hátt, mjög hátt, í gjörsamlega hæstu hæðum.“
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.