Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 06. maí 2021 17:37
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Arsenal og Villarreal: Tierney og Lacazette á bekknum
Bukayo Saka, leikmaður Arsenal.
Bukayo Saka, leikmaður Arsenal.
Mynd: EPA
Það er mikil eftirvænting fyrir leiki kvöldsins í Evrópudeildinni þar sem Arsenal og Manchester United mæta bæði til leiks í undanúrslitum.

Villarreal vann fyrri leikinn gegn Arsenal á Spáni 2-1. Arsenal verður að snúa dæminu við í kvöld og vinna keppnina til þess að eiga möguleika á að spila i Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Kieran Tierney og Alexandre Lacazette eru að stíga upp úr meiðslum og byrja á bekknum. David Luiz er ekki með Arsenal í kvöld.

Byrjunarlið Arsenal: Leno, Holding, Mari, Xhaka, Bellerin, Smith Rowe, Partey, Saka, Pepe, Aubameyang, Ödegaard.

(Varamenn: Ryan, Cedric, Chambers, Gabriel, Tierney, Elneny, Nelson, Willian, Nketiah, Lacazette, Martinelli, Okonkwo)

Byrjunarlið Villarreal: Rulli, Pedraza, Pau Torres, Raul Albiol, Gaspar, Parejo, Coquellin, Trigueros, Gerrard Moreno, Chukwueze, Alcacer.

Leikir kvöldsins:
19:00 Arsenal - Villarreal (Stöð 2 Sport 2)
19:00 Roma - Man Utd (Stöð 2 Sport 3)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner