Olga Sevcova (ÍBV)
Olga Sevcova, kantmaður ÍBV, er sterkasti leikmaður 3. umferðar Bestu deildar kvenna í boði Steypustöðvarinnar. Hún var maður leiksins þegar Eyjakonur sóttu frábæran sigur gegn Val á Hlíðarenda.
Olga kom að tveimur mörkum að þremur í 2-3 frábærum sigri Eyjaliðsins.
Olga kom að tveimur mörkum að þremur í 2-3 frábærum sigri Eyjaliðsins.
„Gæðin og reynslan í Olgu eru ómetanleg í liði ÍBV," skrifaði Tryggvi nokkur Guðmundsson í skýrslu sinni frá leiknum og bætti svo við:
„Hún er einhvernveginn alltaf allt í öllu í sóknarleik liðsins. Hún hefur oft verið meira áberandi en kemur þó að tveimur mörkum ÍBV. Fyrst eftir gott upphlaup og flotta stoðsendingu og svo í jöfnunarmarkinu þegar hún á skotið sem Allison Lowrey fylgdi eftir."
Olga, sem er 33 ára, hefur leikið með ÍBV frá 2020. Hún fór með liðinu niður í Lengjudeildina og hjálpaði því að komast aftur upp. Núna er ÍBV í miklum gír og þar fer Olga fremst í flokki ásamt nöfnunum Allison Clark og Allison Lowrey.
Jón Óli Daníelsson, þjálfari ÍBV, var spurður út í Olgu í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net fyrir tímabilið.
„Olga er að byrja sitt sjöunda tímabil með ÍBV... Hér í Vestmannaeyjum er litið á þær sem uppalda leikmenn. Olga er hér með sinn eiginmann sem er í fullri vinnu og sonur þeirra gengur hér í skóla og æfir með ÍBV," sagði Jón Óli en Olga er í raun bara orðin Eyjakona, eins og Sandra Voitane og Viktorija Zaicikova sem hafa einnig leikið með liðinu í mörg ár.


