Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 10:20
Elvar Geir Magnússon
„Trump er ekki okkar gestgjafi heldur FIFA“
Íranska landsliðið fagnar.
Íranska landsliðið fagnar.
Mynd: EPA
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Giovanni Infantino FIFA-forseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Giovanni Infantino FIFA-forseti.
Mynd: EPA
Mehdi Taj, formaður íranska fótboltasambandsins segir að FIFA verði gestgjafi Írana á HM í sumar; ekki Donald Trump eða Bandaríkin. Óvissa hefur ríkt um þátttöku Írans á HM vegna stríðsins við Bandaríkin.

Taj var meðal fulltrúa Írans sem sneru til baka frá flugvellinum í Vancouver í Kanada í síðustu viku þegar þeir voru á leiðinni á þing hjá FIFA, alþjóða fótboltasambandinu. Þeir voru ósáttir við meðhöndlun landamæravarða og töluðu um óvirðingu.

Vegabréfsáritun Taj var afturkölluð meðan hann var í loftinu vegna tengsla hans við Íslamska byltingarvarðliðið (IRGC) sem er mikilvægt hernaðarlegt, stjórnmálalegt og efnahagslegt afl í Íran. Í Kanada og Bandaríkjunum eru samtökin skilgreind sem hryðjuverkasamtök.

Taj starfaði sem háttsettur embættismaður innan IRGC en hann segir að hann muni leita fullvissu frá FIFA um meðferð íranskra fulltrúa á HM.

„Við þurfum að vera öruggir með ferð okkar, þeir hafa engan rétt til að móðga kerfi okkar eða IRGC. Ef það verður tryggt þá mun uppákoma eins og sú sem átti sér stað í Kanada ekki endurtaka sig," segir Taj.

„Við unnum okkur þátttökurétt á HM og gestgjafar okkar eru FIFA, ekki herra Trump eða Bandaríkin. Það þarf að tryggja það að við getum mætt á mótið áhyggjulausir."

HM verður haldið í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada 11. júní til 19. júlí. Íran á að spila tvo leiki í Los Angeles; gegn Nýja-Sjálandi 15. júní og Belgíu 21. júní og svo í Seatlle gegn Egyptalandi 26. júní.
Slapp
banner
banner
banner