Jürgen Klopp hefur miklar mætur á samlöndum sínum þeim Timo Werner og Kai Havertz, sem leika fyrir RB Leipzig og Bayer Leverkusen.
Liverpool var orðað við báða þessa leikmenn en Klopp hefur bundið enda á þær sögusagnir. Þetta sé ekki rétti tíminn fyrir félagið til að eyða miklum pening á leikmannamarkaðinum.
„Það er mikið af góðum leikmönnum á plánetunni. Timo Werner og Kai Havertz eru frábærir leikmenn en þetta er ekki rétti tíminn," sagði Klopp við Sky í Þýskalandi.
„Fyrir sex eða sjö vikum vissum við ekki einu sinni hvort við gætum spilað fótbolta aftur á árinu. Það er alltof mikil óvissa varðandi framtíðina. Við verðum að bíða og sjá hvað gerist. Við höfum ekki hugmynd hverjar tekjurnar okkar verða og við vitum ekki hvenær við getum hleypt áhorfendum á völlinn.
„Við getum ekki látið eins og allt verði strax eðlilegt aftur bara því við erum byrjaðir að spila fótbolta á ný."
Athugasemdir