Gunnar Einarsson stýrði Kára til sigurs gegn KV í framlengingu. Hann fer næst á gamlan heimavöll í bikarnum.
Haukar, sem leika í 2. deild, unnu 3-1 sigur á Elliða, sem eru nýliðar í 3. deild, í fyrstu umferð Mjólkurbikars karla. Fjórir leikir af 15 eru búnir á þessum laugardegi.
Haukar komust snemma yfir og undir lok fyrri hálfleiksins missti Elliði svo mann af velli með sitt annað gula spjald. Í byrjun síðari hálfleiks þurfti að gera um hálftíma stopp á leiknum eftir að Ívar Orri Kristjánsson, dómari, meiddist. Það þurfti að bíða eftir öðrum dómara svo hægt væri að klára leikinn.
Hlé hefur verið gert á leiknum þar sem dómari leiksins, Ívar Orri er meiddur og þarf skiptingu. @mjolkurbikarinn @footballiceland pic.twitter.com/XZnLCQ8zae
— Haukar Fótbolti (@FCHaukar) June 6, 2020
Þegar leikurinn fór loksins af stað náði Elliði að jafna metin og það gerði Pétur Óskarsson. Einum færri jöfnuðu gestirnir, en þeir náðu ekki að halda þeirri stöðu því Haukar skoruðu tvö áður en leikurinn kláraðist. Lokatölur 3-1 á Ásvöllum. Haukar mæta Álftanes eða Fram í næstu umferð.
Vængir Júpiters unnu endurkomusigur á KH á heimavelli, Hvíti riddarinn vann KFS og Kári náði að knýja fram sigur á KV eftir framlengingu. Gunnar Einarsson tók á dögunum við þjálfun Kára, sem leikur í 2. deild.
Hvíti riddarinn mætir Selfossi næst, Vængir mæta KFB eða Víði og Kári á útileik gegn Leikni Reykjavík.
Vængir Júpiters 3 - 1 KH
0-1 Haukur Ásberg Hilmarsson ('21)
1-1 Arnór Daði Gunnarsson ('76)
2-1 Kristján Svanur Eymundsson ('85)
3-1 Ólafur Rúnar Ólafsson ('92)
Hvíti riddarinn 2 - 1 KFS
1-0 Eiður Andri Thorarensen ('27)
2-0 Hafsteinn Gísli Valdimarsson, sjálfsmark ('31)
2-1 Daníel Már Sigmarsson ('69)
KV 0 - 3 Kári (eftir framlengingu)
0-1 Andri Júlíusson ('105)
0-2 Haraldur Sturlaugsson ('112)
0-3 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('115)
Haukar 3 - 1 Elliði
1-0 Tómas Leó Ásgeirsson ('2)
1-1 Pétur Óskarsson ('67)
2-1 Oliver Helgi Gíslason ('80)
3-1 Daði Snær Ingason ('84)
Athugasemdir